Vöruflokkur: Persónuverndarstefna
1. Ábyrgðaraðili
Vinnufatasalan ehf. ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram í vefversluninni vinnufatasalan.is og í verslun okkar.
- Vinnufatasalan ehf., kt. 620322-1210
- Hjallahrauni 9, 220 Hafnarfirði
- Sími: 546-2020
- Netfang: info@vfx.is
Fyrirspurnir og beiðnir um persónuupplýsingar sendist á info@vfx.is.
2. Hvaða persónuupplýsingar við vinnum
Við vinnum aðeins þær upplýsingar sem þurfa að vera til staðar til að afgreiða pantanir, þjónusta þig og uppfylla lagaskyldur.
- Samskiptaupplýsingar: nafn, netfang, símanúmer, afhendingar- og greiðsluheimilisfang. Við reikningsviðskipti einnig heiti fyrirtækis og kennitala.
- Pöntunarupplýsingar: vörur, stærðir, verð, dagsetning, afhendingarmáti og athugasemdir við pöntun.
- Greiðsluupplýsingar: greiðslumáti og staða greiðslu. Kortanúmer eru ekki geymd hjá okkur; greiðslumiðlunin Teya tekur við þeim.
- Viðskiptareikningur: ef þú stofnar aðgang, netfang þitt og pöntunarsaga.
- Merkingar: lógó og texti sem þú sendir okkur til prentunar á fatnað.
- Samskipti: tölvupóstar, fyrirspurnir, kvartanir og skilabeiðnir.
- Tæknilegar upplýsingar: IP-tala, gerð vafra og tækis, og upplýsingar úr vafrakökum (sjá 7. kafla).
Við óskum ekki eftir viðkvæmum persónuupplýsingum, svo sem um heilsufar.
3. Tilgangur og lagagrundvöllur
Vinnslan byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR).
| Tilgangur | Lagagrundvöllur |
|---|---|
| Afgreiða og afhenda pöntun, t.d. með Dropp | Samningur við þig (b-liður 1. mgr. 6. gr. GDPR) |
| Reikningagerð, bókhald og virðisaukaskattur | Lagaskylda (c-liður), m.a. lög nr. 145/1994 um bókhald |
| Skil, kvartanir og gallaúræði | Samningur og lagaskylda samkvæmt neytendalöggjöf |
| Viðskiptareikningur á vefnum | Samningur við þig |
| Fréttabréf og tilboð í tölvupósti | Samþykki þitt (a-liður) |
| Vafrakökur aðrar en nauðsynlegar | Samþykki þitt |
| Öryggi vefsins og varnir gegn svikum | Lögmætir hagsmunir okkar (f-liður) |
Þér er ekki skylt að láta upplýsingar í té, en án nafns, heimilisfangs og netfangs getum við ekki afgreitt pöntun.
4. Miðlun til vinnsluaðila og annarra
Við seljum aldrei persónuupplýsingar. Við deilum þeim aðeins með fyrirtækjum sem vinna verk fyrir okkur, og aðeins því sem það verk krefst.
| Aðili | Hlutverk |
|---|---|
| Shopify International Ltd. (Írlandi) | Vefverslun og hýsing gögna |
| Teya | Móttaka kortagreiðslna |
| Dropp | Afhending sendinga (nafn, sími, netfang, heimilisfang) |
| Regla | Bókhald og kassakerfi |
| Payday | Reikningagerð |
| Pandectes | Samþykki fyrir vafrakökum |
| Landsbankinn | Millifærslur og kröfur í netbanka |
Auk þess fá endurskoðandi og Skatturinn upplýsingar þegar lög krefjast þess.
5. Flutningur út fyrir EES
Gögn vefverslunarinnar eru hýst hjá Shopify International Ltd. á Írlandi. Shopify flytur gögn til móðurfélagsins í Kanada á grundvelli ákvörðunar framkvæmdastjórnar ESB um fullnægjandi vernd í Kanada. Flutningur til annarra vinnsluaðila utan EES byggir á stöðluðum samningsskilmálum framkvæmdastjórnar ESB.
Þú getur óskað eftir nánari upplýsingum um þessar varnir með því að hafa samband við okkur.
6. Varðveislutími
Við geymum upplýsingar ekki lengur en þörf er á.
| Upplýsingar | Varðveislutími |
|---|---|
| Reikningar og önnur bókhaldsgögn | 7 ár frá lokum reikningsárs, samkvæmt lögum um bókhald |
| Pöntunarupplýsingar | 5 ár frá afhendingu, þó lengur ef þær eru hluti bókhalds |
| Viðskiptareikningur á vefnum | eytt eftir 3 ár án innskráningar eða pöntunar |
| Fréttabréf | Þangað til þú afskráir þig |
| Fyrirspurnir og tölvupóstar | 2 ár |
| Merkingar (lógó) | Þangað til þú biður um eyðingu, svo hægt sé að endurpanta |
| Samþykki fyrir vafrakökum | Eins og fram kemur í vafrakökuborðanum |
7. Vafrakökur
Vafrakökur eru litlar textaskrár sem vefurinn vistar í tæki þínu. Við notum þær í þremur flokkum:
- Nauðsynlegar kökur halda utan um körfu, innskráningu, öryggi og samþykki þitt. Þær eru alltaf virkar því vefurinn virkar ekki án þeirra.
- Tölfræðikökur sýna okkur hvernig vefurinn er notaður, svo við getum bætt hann. Þær eru aðeins virkar með samþykki þínu.
- Markaðskökur gera okkur kleift að sýna auglýsingar sem henta þér. Þær eru aðeins virkar með samþykki þínu.
Þegar þú kemur fyrst á vefinn velur þú í vafrakökuborðanum hvaða kökur þú samþykkir. Þú getur breytt eða dregið samþykkið til baka hvenær sem er með kökutákninu neðst á síðunni.
8. Markaðssetning og fréttabréf
Við sendum fréttir og tilboð þeim sem hafa samþykkt það. Viðskiptavinir sem hafa keypt af okkur geta auk þess fengið tilboð um sambærilegar vörur frá okkur, nema þeir hafi afþakkað það.
Hver tölvupóstur inniheldur hlekk til að afskrá sig, og þú getur einnig sent okkur póst á info@vfx.is. Við hvorki seljum né afhendum öðrum netföng í markaðsskyni.
9. Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
- fá aðgang að upplýsingum um þig og afrit af þeim
- fá rangar upplýsingar leiðréttar
- fá upplýsingum eytt, nema okkur sé skylt að geyma þær, t.d. vegna bókhalds
- takmarka vinnslu
- fá upplýsingar afhentar á tölvutæku formi (flutningsréttur)
- andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum, og alltaf vinnslu í markaðsskyni
- draga samþykki til baka hvenær sem er, án þess að það hafi áhrif á fyrri vinnslu
Sendu beiðni á info@vfx.is. Við svörum innan mánaðar og getum beðið þig að staðfesta hver þú ert.
Ef þú telur vinnsluna brjóta gegn lögum geturðu kvartað til Persónuverndar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík, postur@personuvernd.is, sími 510 9600 (island.is/s/personuvernd).
10. Öryggi og breytingar
Við verjum persónuupplýsingar með aðgangsstýringu, dulkóðuðum samskiptum (HTTPS) og því að nota aðeins vinnsluaðila sem veita fullnægjandi vernd. Verði öryggisbrestur sem stefnir réttindum þínum í hættu tilkynnum við hann til Persónuverndar og, þegar við á, til þín.
Við kunnum að uppfæra þessa stefnu. Nýjasta útgáfan er alltaf á vefnum.
Við tilkynnum um verulegar breytingar með tilkynningu á forsíðu vefsins.
Þessi stefna tekur gildi þann 2. nóvember 2026. Hafnarfirði, 2. nóvember 2026.